
| 1. Segðu vel frá aðstæðum. 2. Segðu hvar þú ert. 3. Segðu hvernig hjálp þú þarft. |
4. Vertu róleg/rólegur. (Haltu stillingu þinni.) 5. Hlustaðu á ráðleggingar. 6. Þarft þú á túlk að halda? (Talar þú . . . ? Ég þarf túlk.) |
Spyrjið næsta mann:
|
Athugið að húsnúmer sem enda á 1, 2, 3 og 4 eru hvorugkyns: eitt, tvö, þrjú, fjögur. |
|
Athugið að símanúmer eru karlkyns: einn, tveir, þrír, fjórir. |
| Hvar ertu? | Ég er í Reykjavík / Kópavogi / Hafnarfirði / . . . |
| Hvar áttu heima? (Hvar býrðu?) | Ég á heima á / í . . . (Ég bý á / í . . . ) |
| á | í | |||
| - gata | - götu | - holt | - holti | |
| - vegur | - vegi | - hlíð | - hlíð | |
| - braut | - braut | - lundur | - lundi | |
| - hagi | - haga | - vogur | - vogi | |
| - bakki | - bakka | - smári | - smára | |
| - grandi | - granda | - heimar | - heimum | |
| - nes | - nesi | - gerði | - gerði | |
| - grund | - grund | - brekka | - brekku | |
| - ás | - ási | - rimi | - rima | |
| - hraun | - hrauni | |||
| - melur | - mel | |||
| - stræti | - stræti | |||
| - lækur | - læk | |||
| - teigur | - teig | |||
| - stígur | - stíg | Aðalstræti | Aðalstræti |
[FORSÍÐA] [yfirlitstafla]
[athugasemdir, 25.09.03]