orðaforði: þemaorð  gs  fs  ath  25.09.03

B R A G I

FRUMSTIG 6 ríki, stjórnarfar : kh

Stjórnskipun

Almennt
  • ríki
  • -ríki: lýðræðis-, konungs-
  • lýðræði, einræði
  • þingbundin konungsstjórn
  • lýðveldi, fullvalda/sjálfstætt/ frjálst ríki
  • ríkið sem atvinnuveitandi: vinna hjá ríkinu/hinu opinbera
  • frelsi
  • frelsisbarátta
  • vald
  • handhafar valds
  • þrískipting valds: löggjafa-, dóms- og framkvæmdavald
  • ráða, stjórna, í umboði e-s
  • stjórn (heima-, her-)
  • embætti, gegna embætti, embættismaður
  • Forseti Íslands
  • Forsetaembættið
Alþingi
  • þing
  • löggjafarþing
  • þingræði
  • (al-)þingismaður/-kona, þingmaður/-kona
  • sitja á þingi, kosinn til þings
  • gegna þingmennsku fyrir e-n flokk
  • þingflokkur, þingflokksformaður
  • þinghald
  • forseti Alþingis
  • efri/neðri deild, sameinað þing
  • umræða
  • þingsályktun. leggja fram þ., samþykkja þ.
Ríkisstjórn, stjórnarandstaða
  • stjórn
  • -stjórn-: ríkis-, minnihluta-, meirihluta-, samsteypu-, fjölflokka-
  • stjórn, sitja í s.
  • stjórnina skipa (ráðherrar)
  • vinstri/hægri stjórn
  • stjórnin er veik, traust, springur, riðar til falls, heldur velli
  • fella stjórnina, lýsa vantrausti á s.
  • stjórnarflokkur
  • ráðherra
  • -ráðherra: forsætis-, menntamála-, iðnaðar-, dómsmála-, félagsmála-, utanríkis-, samgöngu-, heilbrigðis-, sjávarútvegs-, umhverfismála-, fjármála-
  • ráðuneyti
  • framkvæmdavald
  • mynda stjórn, fá umboð til stjórnarmyndunar
  • stjórnarmyndunarviðræður
  • stjórnarandstaðan
Lög og réttur
  • réttlæti
  • löglegt (ó-)
  • leyfilegt/bannað (með lögum)
  • lagasetning, lög
  • setja l., samþykkja l.
  • frumvarp (til laga), leggja fram f.
  • reglugerð
  • stjórnarskráin
  • lagasafnið
  • Stjórnartíðindi
  • réttarkerfi
  • réttur
  • dómstóll
  • hæstiréttur, undirréttur
  • kæra e-n, ákærandi
  • mál, reka mál, sækja m.
  • verjandi, sækjandi
  • dómari, fógeti, sýslumaður
  • dæma, kveða upp úrskurð
  • lögmaður (héraðsdóms-, hæstaréttar-)
  • dómur, úrskurður
  • sekt
  • fangelsisvist
  • náðun, sýknun
  • sleppa úr fangelsi
Stjórnmál
  • stjórnmál
  • taka þátt í s., hafa afskipti af s., vera virkur í s.
  • stjórnmálamaður
  • flokkur
  • vera í f., ganga í/úr f., styðja f., fylgja f., ganga til liðs við
  • leiða f. (í kosningum), kljúfa fl.
  • flokksbundinn
  • stefna, málgagn
  • hægri, vinstri, miðju flokkur
  • -flokkur: jafnaðarmanna-, íhalds-, kommúnista-, sósíalista-
Kosningar
  • kosningar (Alþingis-, sveitastjórnar-)
  • kosningaréttur
  • kjörstaður, kjörklefi, kjörfundur
  • kjósa, kjósandi
  • atkvæði, greiða a.
  • atkvæðagreiðsla, greiða a.
  • kjörgengi
  • framboð, vera í f.,
  • framboðslisti, vera efsti maður á lista flokksins
  • frambjóðandi
  • bjóða sig fram (til þings), vera í kjöri til
  • kjördæmi, kjördæmaskipan
  • kjörtímabil

Yfirvöld, opinberar stofnanir

Almennt
  • yfirvöld
  • -yfirvöld: borgar-, bæjar-, skóla-, toll-, skatta-, heilbrigðis-, umferðar-
  • stofnun
  • opinber (stofnun, yfirlýsing, gögn, starfsmaður, aðili)
  • vera í opinberri eign
  • einka-/ríkisstofnun
  • vísa máli/einhverjum til stofnunarinnar
  • einstakar stofnanir: -stofnun: trygginga-, brunamála-, veiðimála-, flugmála-, þjóðhags-, orku-
  • nefnd, sitja í n.
  • nefndarmaður
  • nefndarálit/-ályktun, senda frá sér n.

Vinnslustig
Bæjar- og borgaryfirvöld
  • bæjarstjóri
  • Borgarstjóri Reykjavíkur
  • ráðhús
  • bæjar-, borgarfulltrúar
  • sitja í bæjarstjórn
Lögreglan, vegabréf
  • löggæsla
  • lögreglustöð
  • lögregluþjónn, lögreglustjóri
  • útkall
  • vakt
  • vegabréf, sækja um v.
Slökkviliðið
  • hringja á slökkviliðið: 112
  • slökkviliðs-: -maður, -bíll
Tollurinn
  • tollur (innflutnings-, útflutnings-, verndar-)
  • leggja t. (á varning), afnema t.
  • greiða toll,
  • fara í gegnum tollinn
  • tollþjónn
  • varan er tollskyld/undanþegin tolli, tollfrjáls
  • smygl, smygla
Annað
  • Hagstofan, þjóðskrá
  • Skattstofan
  • Biskupsstofan
  • Utanríkisþjónustan, sendiráð, sendiherra
  • konsúll

[FORSÍÐA] [yfirlitstafla] [þemaorð]

[athugasemdir, 25.09.03]