námsbók: gs   vb  kh  ath  06.12.01

B R A G I

frumstig   land og haf: lesa

Uppskrift

Verkefni

Pönnukökur
Myndir: Nanna Eggertsdóttir

  • 300 grömm hveiti
  • 1 teskeið lyftiduft
  • salt á hnífsoddi
  • 30 grömm smjörlíki
  • 1 lítri mjólk
  • 2 egg
  • vanilludropar ef vill

 

  • þeyttur rjómi og sulta eða sykur

 

  • Blandið saman hveiti, salti og lyftidufti í skál.
  • Hellið helmingi mjólkurinnar saman við.
  • Þeytið saman.
  • Bræðið smjörlíkið, kælið það og blandið því saman við.
  • Hrærið eggjunum saman við.
  • Hellið afgangnum af mjólkinni út í.
  • Þeytið vel saman í kekkjalaust deig.
  • Hitið pönnuna og bakið þunnar pönnukökur á henni.
  • Þeytið rjóma og berið pönnukökurnar fram með sultu og rjóma eða rúllið upp með sykri.

 

Hellið deiginu á pönnuna og bakið þunnar pönnukökur.

Þeytið rjóma og berið pönnukökurnar fram með sultu og rjóma eða rúllið upp með sykri.

 

Verði ykkur að góðu!

 

Sagnorð: nafnháttur
  

  

  

  

 

 

[FORSÍÐA] [yfirlitstafla]

[athugasemdir, 06.12.01]