vinnubók: gs  nb  kh  ath  24.10.01

fjar
B R A G I

frumstig   náttúra: skrifa

Tröllin í fjöllunum

Verkefni 1

 

  Egill Gunnarsson og Gígja Svavarsdóttir lesa  

 

Nípukerling

Steindrangur stóð langt fram á 19. öld við Norðfjarðarnípu, en hrundi þá í sjó niður.  Átti steindrangurinn að vera náttskessa sem varð að steini á leiðinni á milli Norðfjarðar og Mjóafjarðar.  Haft er eftir henni sjálfri að hún hafi flúið í Norðfjarðarnípu þegar mennskir menn komu til Íslands.

 

Áður en land þetta, sem þið kallið Ísland, byggðist mennskum mönnum, fluttust hingað alls konar landvættir, huldufólk, dvergar og tröll og lifðu hér í friði og ró.  Ég var ein þessara trölla og lifðum við tröllin á hvölum og rostungum, fugli og fiski.  Á kvöldin í hellunum okkar, við nógan eld, sögðum við hvert öðru gamlar tröllasögur, fórum í leiki og skemmtum okkur.  Ég og fjölskylda mín áttum heima hér fyrir austan og vorum við göfgust tröllanna.  Svona leið tíminn þangað til mennskir menn fóru að nema hér land.  Þó gekk þetta þokkalega á meðan menn þessir trúðu á Óðin og Þór og alla Æsi. 

Aðlagaður texti úr Íslensku vættatali, bls. 107.
Árni Björnsson tók saman, 
Mál og menning, Reykjavík 1990.

 

 

 

Verkefni 2

 

Reynisdrangar við Vík í Mýrdal , eins og margir aðrir steindrangar, minna á nátttröll sem hafa orðið að steini.

Mynd: Íslenska vegahandbókin, Landmælingar og Íslenska Bókaútgáfan, 1996.

 

 

[FORSÍÐA] [yfirlitstafla]

 

[athugasemdir, 24.10.01]