vinnubók: gs Reykjavík Menningarborg 2000  nb  kh  ath  25.09.03

B R A G I

vinnustig   náttúra: lesa

Þjóðsaga: Huldumanna Genesis

Verkefni 1

Huldumanna Genesis

Einhverju sinni guð almáttugur til Adams og Evu.   þau honum vel og honum allt sem þau   innan stokks. Þau honum líka börnin sín og honum þau allefnileg. Hann Evu hvort þau ættu ekki fleiri börn en þau sem hún var búin að sýna honum. Hún nei. En svo   á að Eva hafði ekki verið búin að þvo sumum börnunum og fyrirvarð sig því að láta guð sjá þau og  þeim þess vegna undan. Þetta guð og segir: „Það sem á að vera hulið fyrir mér skal verða hulið fyrir mönnum.“ Þessi börn nú mönnum ósjáanleg og í holtum og hæðum, hólum og steinum. Þaðan eru álfar komnir, en mennirnir eru komnir af þeim börnum Evu sem hún guði. Mennskir menn geta aldrei séð álfa nema þeir vilji sjálfir því þeir geta séð menn og látið menn sjá sig.


Verkefni 2

Huldumanna Genesis

Einhverju sinni (koma) guð almáttugur til Adams og Evu. (Fagna) þau honum vel og (sýna) honum allt sem þau (eiga)   innan stokks. Þau (sýna) honum líka börnin sín og (þykja) honum þau allefnileg. Hann (spyrja) Evu hvort þau ættu ekki fleiri börn en þau sem hún var búin að sýna honum. Hún (segja) nei. En svo (standa)   á að Eva hafði ekki verið búin að þvo sumum börnunum og fyrirvarð sig því að láta guð sjá þau og (skjóta) þeim þess vegna undan. Þetta (vita) guð og segir: „Það sem á að vera hulið fyrir mér skal verða hulið fyrir mönnum.“ Þessi börn (verða) nú mönnum ósjáanleg og (búa) í holtum og hæðum, hólum og steinum. Þaðan eru álfar komnir, en mennirnir eru komnir af þeim börnum Evu sem hún (sýna) guði. Mennskir menn geta aldrei séð álfa nema þeir vilji sjálfir því þeir geta séð menn og látið menn sjá sig.

   

[FORSÍÐA] [yfirlitstafla]

[athugasemdir, 25.09.03]